Við heitum Björk og Katrín og erum í 10. bekk í Laugalækjarskóla. Síðastliðnar vikur höfum við verið að vinna að lokaverkefninu okkar en við ákváðum að gera verkefnið um dans sem einblínir á það hvort að dans væri heldur íþrótt eða listgrein. Við tókum viðtöl við þær konur sem hafa haft mikil áhrif á danshreyfinguna hér á landi ásamt atvinnudansörum og þær sögðu okkur hvort þeim fyndist dans vera íþrótt eða listgrein.
Á þessari vefsíðu er hægt að fá mismunandi svör við þessari spurningu ásamt ljósmyndum af okkur að dansa mismunandi dansspor og margt fleira. Hér er einnig hægt að fræðast meira um efnið og vonandi gaf hún þér nýja hlið á dansi.
Við heitum Björk og Katrín og erum í 10. bekk í Laugalækjarskóla. Síðastliðnar vikur höfum við verið að vinna að lokaverkefninu okkar en við ákváðum að gera verkefnið um dans sem einblínir á það hvort að dans væri heldur íþrótt eða listgrein. Við tókum viðtöl við þær konur sem hafa haft mikil áhrif á danshreyfinguna hér á landi ásamt atvinnudansörum og þær sögðu okkur hvort þeim fyndist dans vera íþrótt eða listgrein.
Á þessari vefsíðu er hægt að fá mismunandi svör við þessari spurningu ásamt ljósmyndum af okkur að dansa mismunandi dansspor og margt fleira. Hér er einnig hægt að fræðast meira um efnið og vonandi gaf hún þér nýja hlið á dansi.
Dans - Uppruni
Dans hefur verið tengdur við fornar hefðir, trúaðar samkomur og félagslega viðburði, frá fyrstu þekktu augnablikum mannkynssögu. Dans er án efa eitt sterkasta form tjáningar sem við þekkjum. Elstu sönnunargögn sem fundist hafa um dans eru 9000 ára gamlar hellamyndir á Indlandi. Myndirnar sýna veiðar, fæðingar, trúartengda hluti, jarðarfarir og fyrst og fremst dans og drykkju. ballettBallett á uppruna sinn að rekja til Ítalíu á 15. öld. Franska drottningin Catherine de´ Medici var styrktarmaður balletts fyrir frönsku réttarhöldin. Ballett var áfram sýning fyrir réttarhöldin þangað til árið 1661, þegar sonur drottningarinnar, Louis XIV konungur opnaði dansskóla. Ballett varð sífellt vinsælli um Evrópu og um 19. öldina hafði hann dreifst til Rússlands. Ballett hefur þróast mikið í gegnum tíðina. Til að byrja með voru þessu klassísku ballettspor sem til eru í dag ekki notuð en þau komu til sögunnar þegar konungurinn stofnaði dansskólann. Eftir þetta var ballett fluttur sem hluti af óperu og var því kallaður óperu – ballett. Um 1700 hóf danshöfundur að nafni, Jean – Georges Noverre að semja dans sem sögðu einhverjar sögur. Hann kenndi dönsurum að tjá og túlka dans sinn til þess að komast hjá því að vera skilgreindur sem óperu – ballett. Árið 1832 hófst rómantíska ballett tímabilið. Þá byrjuðu konur að dansa ballett, en áður höfðu karlmenn alltaf dansað kvenhlutverkin sem og karlhlutverkin. Þá komu táskór og tútúpils. Sögurnar sem dansararnir sögðu hættu að vera goðsagnakenndar og urðu um ævintýri. Í Rússlandi snérist ballett fyrst og fremst um tækni og minni pils til að fótavinna sæist betur. |
Street dansStreet dans hefur oftast verið flokkaður í tvö tímabil, það gamla og það nýja. Allur innblástur street dans kemur frá afrískri og amerískri menningu, einnig þekkt sem hip hop menningin. Street dans kemur frá New York í kringum 1970 sem þróaðist á götum Manhattan og Bronx en ekki í hefðbundum dansskólum. Street dans var því þróaður sem dansstíll sem var á móti hinum klassísku hreyfingum. Nútímadans
í kringum 1980 var orðið „nútímadans“ notað yfir hreyfingu dansara sem vildu ekki fylgja reglum klassíska ballettsins. Nútímadans er því samblanda af öllum dansstílum heims. Nútímadansarar þróa því mismunandi form tilfinninga á sinn hátt og eru í raun að finna takmörk líkama síns. Uppruna dansstílsins má rekja til margra mismunandi dansmeistara, t.d. Martha Graham, Merce Cunningham og Isadora Duncan en þær lögðu sig fram við að veita dönsurum frelsi til þess að tjá sig og hætta að fylgja gömlum hefðum. |
Jazzballett
Jazzballett hefur þróast af mörgum mismunandi dansstílum. Hann varð til á svipuðum tíma og bandaríska jazz tónlistin og á rætur sínar að rekja til afrískra hefða. Seinna meir var jazzballett kenndur við step dans og leiksýningar. Jazzballett hefur haldið áfram að þróast í gegnum árin og í kringum 1800 var þrælum í Ameríku heimilt að dansa til þess að halda sér formi. Snemma á 20. öldinni, þegar svartir Bandaríkjarmenn urðu forsprakkar jazz þróuðu þeir jazzballett.
Samkvæmisdans
Fyrr á tíð var samkvæmisdans oftast kenndur við böll eða aðrar félagslegar samkomur og átti að stuðla að því að ungt fólk myndi kynnast þeim sem það kæmi til með að kvænast. Dansinn átti að gefa þeim tækifæri á að tengjast á annan hátt en þau myndu venjulega. Nú til dags er samkvæmisdans orðinn viðurkennd keppnisíþrótt og regluleg mót eru haldin víða. Margir dansstílar innan samkvæmisdansins hafa þróast og sem dæmi má nefna vals, jive, tango og cha cha.