Brynja Pétursdóttir byrjaði að kenna street dans á Íslandi árið 2004, þá einungis 19 ára gömul. Árið 2012 stofaði hún svo Dans Brynju Péturs þar sem hún bíður upp á danskennslu fyrir alla aldurshópa. Brynja hefur sótt mörg dansnámskeið víða um heiminn og hefur stúderað hiphop, dancehall, waacking, popping, top rock, vogueing og house, en það eru danstílar sem hún kennir í dag.
Hefur þú fundið mun á viðhorfi fólks til dansara, erlendis og hér heima? Ef svo er, hvernig?
„Tækifæri fyrir dansara eru lítil heima á Íslandi, þar af leiðandi er ekki mikið um það að fólk starfi einungis sem dansarar - hvort sem það er í kennslu, rekstri dansskóla eða sem vinnandi dansari. Það er líklega ástæðan fyrir því að viðhorfið er öðruvísi, fólk er hissa á því að einhver hafi lifibrauð af dansi. Ég er mikið í New York, þar er auðvitað allt morandi í dönsurum, leikurum og söngvurum sem eru vinnandi í sinni list og það lyftir enginn augabrún yfir því þegar einhver segist vera dansari. En það líf er oft mikið ströggl, ég þekki heimsfræga dansara sem eru bestir í sínu fagi en þurfa að vaska upp á veitingastöðum til að láta enda ná saman."
„Viðhorfið heima er alltaf jákvætt, það er mjög gaman að finna fyrir stuðningnum og líka gaman að koma fólki á óvart með því að hafa byggt eitthvað frá grunni sem nú er orðið svona stórt. Pælingin mín hefur alltaf verið sú að geta gefið öðrum dönsurum vinnu, í kennslu og á sviði. Draumurinn er að geta gefið dönsurum færi á því að gera meira af því sem þau elska að gera."

Hvernig viðbrögð færðu þegar þú segir fólki að þú starfir sem dansari?
„Í New York liggur við að fólk öfundi stöðuna sem ég er í, mikið af mínum jafningjum dreymir um að vera í svipaðri stöðu - að eiga eitthvað sem hefur blómstrað í fulla vinnu og gengur vel. Það er auðvitað mun erfiðari markaðurinn í New York, heima hafði ég þá sérstöðu að vera sú eina sem var að troða street dansi inn á kortið... well, alvöru street dansi:)"
„Heima spyr fólk hvort að það sé mín eina vinna og er hissa þegar ég segi þeim að ég sé búin að koma mér á þann stað að geta lifað á ástríðunni minni. "

Telur þú dans vera íþrótt eða listgrein?
„Dans er bæði, það fer allt eftir því hvernig þú nálgast dansinn. Þú verður að vera í góðu formi með gott úthald til að dansa, þú þarft einnig að vera sterk / ur. Dans væri ekki dans nema að fegurðin fylgdi með, í groovinu, línunum og sköpuninni. Danshöfundar eru í mínu áliti flottustu hönnuðirnir."

Finnst þér dansáhugi hjá ungum krökkum vera mikill um þessar mundir?
„Já mér finnst dansáhugi vera að aukast mikið á Íslandi, það hjálpar auðvitað að dansarar, eins og til dæmis mínir danshópar, eru orðnir meira áberandi. Nú er komin svo mikil flóra á Íslandi sem var ekki til áður, mér finnst það hafa bein áhrif á áhuga hjá yngri aldurshópum. Það er klikkað að horfa á kynslóðir alast upp á Íslandi sem finnst eðlilegt að geta stundað street dansnám og eru með grunn í stílum eins og Hiphop og Dancehall, eins og ekkert sé eðlilegra. Þetta breikkar menningarlandslagið okkar og ýtir undir fjölbreytnina, sem er svo falleg."