Hefur þú fundið fyrir breytingu á viðhorfi fólks til dansara, erlendis og hér heima? Ef svo er, hvernig?
„Já, ég hef fundið fyrir breytingu á viðhorfi til dansara. Samfélagsmiðlar hafa breytt viðhorfi til dansara að mínu mati. Fólk sér meira af dansi, hreyfingum sem þeim líkar og kannski dans við uppáhalds lagið þeirra og líkar það sem það sér og jafnvel deilir því á sínar samfélagsmiðla síður. Fólk er að átta sig á því að dans er erfið grein og ber virðingu fyrir því sem dansarar eru að gera. Ég finn líka fyrir aukinni eftirspurn hjá listamönnum eftir dönsurum í verkefni og viðburði."
telur þú dans vera íþrótt eða listgrein?
„Dans er 100% íþrótt fyrir mér. Dans er í dag viðurkenndur sem listgrein en dansarar eru ekkert nema íþróttamenn fyrir mér. Það þarf styrk, liðleika, og úthald til þess að vera góður dansari auk þess að vera með góða tilfinningu, tónnæmi, þol, útgeislun, sterkan persónuleika og góða framkvæmd. Dansarar þurfa líka að geta unnið vel með mörgum og skapað liðsheild svo það er allt til staðar sem tónar við íþróttaheiminn.“
Finnst þér dansáhugi hjá ungum krökkum vera mikill um þessar mundir?
„Já, ég finn fyrir miklum dansáhuga hjá ungu kynslóðinni, ekki spurning. Það er frábært að upplifa það en áhugann má bæði rekja til samfélagsmiðla og tónlistarstefnunnar sem er vinsæl í dag.“