Hvað er list?
List er sköpun og það sem hefur áhrif á fólk.
Listamaðurinn, verkið og áhorfandinn eru lykilþættirnir í listinni þar sem að verkið er eitthvað sem listamaðurinn skapaði til þess að sýna áhorfendum í von um að hafa áhrif á horfandann.
List er eins og rammi í kringum sköpun og það sem hefur áhrif á næsta mann í ákveðnum tilgangi. Í list liggur að baki mikil vinna eða rannsókn sem endar á því að sýna áhorfendum niðurstöðuna.
Undir list flokkast meðal annars leiklist, myndist og tónlist.
List snýst um ímyndun og að skapa og að skilja svo eftir sig einhverja tilfinningu, skoðun eða aðra hugsun en áður hjá áhorfendum. Ef það tekst er markmiði listamannsins náð.
Um langan tíma var skoðun almennings að list væri eftirlíking. Ef teiknuð er mynd af skál, er myndin eftirlíking af skálinni en þegar ljósmyndatæknin varð til, varð þessi kenning úrelt þar sem ljósmynd tekur nákvæmari mynd af fyrirmyndinni en teiknaða myndin. Þá varð hugtakið tjáning notað í staðinn fyrir eftirlíkingu. Að tjá tilfinningar eða sköpun og að mynda einhvers konar form.
afhverju flokkast dans sem listgrein?
Dans er ein gerð af tjáningarformi og telst því sem list. Listin í dansi eru líkamlegar hreyfingar og sagan og hugmyndirnar sem dansinn segir. Dans er ein leið til þess að tjá sínar hugsanir, tilfinningar eða skoðun. Dans er því eins og tónlist og leiklist þar sem að tilgangurinn er sá sami og í dansi þó svo að dans getur verið líkamlega flóknari.