Niðurstaða og lokaorð
Eftir mikla rannsóknarvinnu höfum við komist að því að ekki er hægt að skilgreina það hvort dans sé íþrótt eða listgrein. Svörin sem við fengum voru öll misjöfn og fór það eftir aldri og reynslu fólks á dansi hvort þau töldu dans vera íþrótt eða listgrein.
Margir sögðu að dans ætti auðveldlega við bæði hugtökin en flestir voru sammála um að dans væri listgrein sem reynir mikið á líkamlega.
Dans verður sífellt vinsælli hreyfing og bætast því við danskeppnir en við teljum að dans verði ekki breytt í viðurkennda íþrótt heldur muni dans halda áfram að vera listgrein þar sem að hann snýst fyrst og fremst um sköpun og ímyndun.
Í þessu ferli höfum við heyrt margar hliðar af sama málefninu sem hefur verið mjög lærdómsríkt. Við heyrðum um uppruna jazzballett á Íslandi en einnig hvernig street dans menningin hefur þróast hér á landi. Við töluðum við fagfólk ásamt fólki á öllum aldri með litla reynslu af dansi til þess að athuga hve mikil þekking á dansi er hér á landi. Þessi athugun sýndi okkur að lítil þekking á dansi er á Íslandi.
Alveg frá því að við heyrðum af þessu verkefni vissum við að við vildum gera rannsókn á dansi hérlendis. Ástæðan er sú að vildum sjá hve mikil þekking, reynsla og áhugi er fyrir dansi. Þetta verkefni hefur þróast mikið en við erum mjög stoltar af lokaútkomunni.
Frá byrjun höfum við verið mjög svipaðar hugmyndir fyrir verkefnið og unnum við vel saman og gekk því ferlið mjög smurt fyrir sig.