Íþróttir
Íþrótt er skilgreind sem hreyfing sem reynir líkamlega á. Margar íþróttir einblína á keppnir og þær kallast keppnisíþróttir. Hundruðir mismunandi íþrótta eru til og í sumum þeirra eru margir keppendur sem keppa hver á móti öðrum, en í öðrum keppast tvö eða fleiri lið um sigur. Fólk stundar íþróttir af mörgum ástæðum, til dæmis til halda heilsu, til að halda sér í formi, til að fá útrás, til þess að sigra í keppni, til að ná árangri, eða einfaldlega vegna ánægjunnar. Íþróttir skiptast í nokkra flokka, hópíþróttir, keppnisíþróttir, einstaklingsíþróttir og fleiri. Lang flestar íþróttir hafa reglur sem iðkendur verða að fara eftir. Ef þeir fara ekki eftir þeim er líklegt að þeir verði úr leik.
Á hinn bóginn eru einnig til hugar íþróttir, en það er sá hluti íþrótta sem er ekki líkamlega erfiður, en telst samt til keppnisíþrótta. Til dæmis má nefna skák, sem hefur lengi talist til íþrótta, en það hefur farið í taugarnar á mörgum dönsurum, þar sem að dans er ekki talinn íþrótt, þó að hann uppfylli öll þau skilyrði sem íþróttir hafa.
AFhverju ætti dans að flokkast sem íþrótt?
Dans krefst mikillar þjálfunar, bæði líkamlega og andlega. Margir dansarar æfa alla daga vikunnar og í marga klukkutíma í senn. Dansari þarf einnig að mæta á allar æfingar og gera mikið af styrktaræfingum til þess að ná árangri. Mikilvægt er að setja sér markmið fyrir þá sem vilja skara fram úr í dansi, líkt og í öðrum íþróttum.