Við töluðum við fólk á öllum aldri og spurðum þau hvort að þau skrilgreina dans sem íþrótt eða listgrein til þess að fá sjónarhorn alls konar fólks.
Telur þú dans vera íþrótt eða listgrein?
„Ég myndi tvímælalaust segja að dans væri bæði listgrein og íþrótt og alveg sérlega góð blanda af hvorutveggja. Íþrótt af því dansinn reynir á styrk, úthald, þol, liðleika, snerpu og svo margt, margt fleira. Listgrein af því dansinn er tjáning
(á tilfinningum/aðstæðum osfrv.) og til dæmis í samkvæmisdönsum, sem ég prófaði í Allir geta dansað, þá snýst allt um að búa til og sýna (áhorfendum) fallegar línur, 'positions' eins og Javi sagði alltaf, sem og auðvitað fallegar línur og spor með snerpu þegar það á við og fallegar hreyfingar og innilega tjáningu, sem áhorfandinn getur tengt við (vonandi) og hrifist með. Það er meðal annars tilgangur dansins. Að gleðja og hrífa!“ - Ebba Guðný Guðmundsdóttir (43 ára), fyrrum keppandi í Allir geta dansað „Dans er bæði listgrein og íþrótt. Ballett er t.d. falleg listgrein. Það er ávallt gaman að sjá flotta dansara, hvort sem verið er að dansa salsa, polka, tangó en uppáhaldið mitt er tjútt. Það var dansað af miklum móð þegar ég var ung og flottast þótti að dansa það á hæstu hæðum, það er íþrótt og bæði gleður, kætir og reynir á. Djæf er svo rólegra en ágætis hreyfing. Svo eru margir sem dansa gömlu dansana sér til ánægju og er ágætis meðal við ellinni. Ég er að dansa zumba sem er afar góð hreyfing, skemmtilegt og reynir bæði á hreyfingu og huga, þar sem þetta er hraður dans. Kennarinn minn segir að zumba sé heilaleikfimi og sé besta sem hægt getur verið að stunda gegn alsæmi sem er afar erfiður sjúkdómur á eldra fólki. Svo má ekki gleyma að enginn syngur í vondu skapi og eins er með dansinn.“ - Guðríður Björk Pálmadóttir, zumba nemandi (73 ára) „Sko, mér finnst það vera íþrótt þegar það er keppt í því, en list þegar maður er að sýna listina eftir að maður er búinn að æfa hana lengi. Ef maður telur líkamsrækt íþrótt, þá getur maður talið dans íþrótt. Þú ert að hreyfa þig, en af því að það er ekki alltaf keppt í því er hægt að segja að þetta sé list, en það reynir samt mjög á líkamlega.“ - Sóley Margrét Valdimarsdóttir, fyrrum fimleikastelpa (15 ára) „Það getur verið bæði. Sem dæmi má nefna fimleika og jazzballett sem eru mjög svipaðir hlutir að nokkru leiti. Það er erfitt að segja að allur dans sé íþrótt eða að allur dans sé list, það er eiginlega ekki hægt að alhæfa.“ - Magnús V. Guðlaugsson, kennari og dansáhugamaður (64 ára) „Þetta er náttúrulega að hluta til bæði, en ég myndi frekar segja list. Ástæðan er sú að list fer í nokkra undirflokka t.d. leiklist, myndlist, tónlist og listin að dansa. Líka vegna þess að list skilur oft meira eftir sig en íþróttir. Ef þú ferð og hlustar á lag, það getur skilið mikið eftir þegar þú ferð af tónleikunum, þú kannski manst eftir laginu. Þú kannski manst eftir fótboltaleiknum sem þú fórst á, en hann skilur kannski ekki meira eftir en „jess, við unnum“, eða „æjj, við töpuðum“. Svo já, ég held að list hafi meiri áhrif á tilfinningar fólks, og dans getur haft áhrif á það, eða látið fólk finna fyrir vissum tilfinningum. Þess vegna segi ég að dans sé heldur list en íþrótt.“ - Högni Gunnar Högnason, sellóleikari (15 ára) „Mér finnst dans vera íþrótt af því að það reynir á, en það fer líka eftir hvernig dans það er. Það er mismunandi eftir því hvernig dans það er.“ - Sveinn Búi Birgisson, körfuboltalmaður (16 ára) |
„Dans er bæði íþrótt og listgrein. Listgrein því hún er að tjá tilfinningar, sögu og með nýjum hætti ( búið til ). Að baki er mikil vinna, æfing og sköpun og svo sýning í lokin öðrum til að upplifa. Slíkar sýningar skapa hughrif og gefa fólki jafnvel nýjar hugmyndir. Svo dans er klárlega listgrein. Dans er ekki íþrótt, en hún er íþrótt að því leiti að hjartað slær hraðar, vöðvar styrkjast og þol og æfingar eru endurteknar aftur og aftur, til að ná meiri árangri. Allt sem á við um þá sem ástunda tiltekna íþróttagrein. List er tjáning, íþrótt er ástundun, dans er bæði."
- Hrefna Guðmundsdóttir, sálfræðingur (52 ára) „Mér finnst dans vera bæði listgrein og íþrótt, þar sem að það er listrænt, en íþrótt líka af því að þú ert að hreyfa þig, og þú ert að gera mikið eins og íþróttamenn, þú ert að gera alls konar erfiðar æfingar sem reyna á líkamann. " - Alexandra Rudolfsdóttir, fyrrum dansnemandi (16 ára) „Ég myndi segja íþrótt, en þetta gæti vissulega flokkast sem hvoru tveggja, en fyrir mér eru dansarar harðduglegir íþróttamenn.“ - Eva Laufey Kjaran Hermannsdóttir (29 ára), fyrrum kynnir í Allir geta dansað. „Ég tel dans vera íþrótt þar sem að það reynir líkamlega á, ekki eins og skák sem ætti ekki að vera íþrótt þar sem að lítil sem engin líkamleg hreyfing er í skák sem er talin vera íþrótt." - Magdalena Eyjólfsdóttir, samkvæmisdansari í DSÍ (15 ára) „ Sko, mér finnst þetta mjög erfið spurning af því að mér finnst þetta vera bæði. Vegna þess að dans er mjög mikið puð, þetta er mjög mikil líkamleg áreynsla þannig að þú þarft að vera í mjög góðu formi. Í íþróttum er ákveðin líkamleg færni sem þú þarft að ná sem að er eins í dansinum, þú þarft að ná ákveðni færni og vera mjög sterkur og hafa gott þol og er dans þar af leiðandi íþrótt en þetta er samt sem áður listgrein líka því þar kemur tónlistin meðal annars inn í og svo eru hreyfingarnar mjög listrænar með höndum og tám og það að vera í takt. Svo er þetta líka leikur eins og í samkvæmisdansi því þá er þetta ákveðin túlkun, að túlka listrænt. Þess vegna finnst mér þetta vera blanda en ef ég þyrfti að velja hvort á frekar við þá myndi ég segja frekar listgrein.“ - Sigurlaug Arnardóttir, kennari og óperusöngkona (48 ára) „Ég myndi heldur kalla það listgrein af því að það snýst meira um að skapa eitthvað en að keppa, en það getur verið íþrótt." - Ármann Leifsson, kóngur (15 ára) „Þetta er íþrótt vegna hreyfingarinnar, náttúrulega, maður þarf að borða hollt og hugsa um heilsuna og annað. Þetta snýst líka um tjáningu og tilfinningar og annað, t.d. að segja frá einhverjum viðburði eða lýsa einhverri tilfinningu, og þá er þetta orðið að list.“ - Lis Ruth Klörudóttir, verkefnastjóri og Glæsibær (25 ára) |